Í þessum rétt eru aðeins 291kcal og 4g af kolvetnum, 12g af fitu og 42g af próteini.
// Innihald
- 2 brokkolí hausar
- 2tsk ólífuolía
- 5 skarlottlaukar, fínt skornir
- Lúka af svörtum ólífum (e. smekk)
- 4 steiktar kjúklingabringur (krydda e. smekk)
- 5tsk soja sósa
- 2 rauð chili (fræhreinsuð og fínt skorin)
- 2 hvítlauksgeirar, fínt skornir
// Aðferð
- Gufusjóðið eða mögulega steikið broccolíið í 4 mín þangað til að það er orðið mjúkt og gott (eða nett steikt eins og ég vill hafa það)
- Steikið skarlottlaukinn á pönnu í 2 mín og bætið svo chili og hvítlauk útí og steikið í 3 mín í viðbót
- Takið laukana og chilliið og setjið það yfir brocccoliið.
- Setjið kjúkling á pönnuna (í olíuna eftir hitt) og steikið vel
- Bætið svo kjúllanum útí brokkolíið og hitt
- Setjið olífur yfir e. smekk
- Hitið sojasósuna á pönnu þar til hún er vel heit og sullið yfir allt saman (má líka nota teríaki en þá erum við komin með mun meiri sykur)
Það skemmtilega við þetta er að þetta geymist þrælvel. Setið þetta í lofþétt ílát í ískáp og þetta endist út vikuna.